Eru leiðandi á heimsvísu í meðferðum gegn öldrun húðar, húðvörur sem virka!
Vörurnar eru umhverfisvænar, vegan (nema InfuseFAST™ andlitsmaskinn sem inniheldur sjávarkollagen), lausar við paraben og öll litar- og ilmefni. Þær eru lífbrjótanlegar og/eða 100% endurvinnanlegar og aldrei prófaðar á dýrum.
Serum, sílikonplástrasápa og sílikonplástrar eru endurnýtanlegar vörur með 100% endurvinnanlegum umbúðum. InfuseFAST™ maskarnir brotna að fullu niður í náttúrunni innan 8 vikna.
Ólíkt mörgum öðrum möskum sem innihalda ólífbrjótanleg efni eða gerviefni eins og nylon, eru maskarnir frá Wrinkles Schminkles úr lífrænu Biocellulose plöntuefni sem er lífbrjótanlegt og umhverfisvænt.
Wrinkles Schminkles eru nú seld í yfir 40 löndum og vörurnar hafa hlotið viðurkenningar og vottanir frá ýmsum stofnunum.
Árið 2014 tók stofnandi Wrinkles Schminkles, Gabrielle Requena, eftir nýjum línum á bringunni og fann fáar áhrifaríkar lausnir gegn þeim. Hún ákvað því að þróa öruggar, árangursríkar og hagkvæmar vörur sem hjálpa konum um allan heim að viðhalda unglegri húð og draga úr hrukkum á einfaldan hátt.
Gabrielle lagði frá upphafi áherslu á hágæða og árangursríkar vörur sem eru öruggar fyrir húðina. Wrinkles Schminkles er 100% ástralskt fyrirtæki og vörurnar eru þróaðar með gæði í fyrirrúmi. Sílikonplástrarnir eru framleiddir í FDA-vottaðri verksmiðju í Bandaríkjunum úr 100% hágæða læknasílikoni.