Algengar spurningar
Finnur þú ekki svarið ?
Endilega sendu okkur fyrirspurn og við svörum þér sem fyrst.
Afhending & Sendingar
Hversu langan tíma tekur að fá sendingu?
Afhendingartími er 1-3 virkir dagar, eftir hvaða sendingarmáti er valinn.
Hvernig sé ég hvar sendingin mín er?
Þegar pöntunin þín hefur verið send færðu staðfestingarpóst með upplýsingum um sendinguna. Ef þú hefur einhverjar spurningar er alltaf velkomið að hafa samband við okkur.
Get ég sótt pöntun til ykkar?
Hægt er að sækja pantanir til okkar í Pétursbúð á Ránargötu 15, 101 Reykjavík. Opnunartímar eru frá 09:00 -22:00
Skil & Skipti
Hvað hef ég langan tíma til að skila vöru?
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað né skipt.
Hvernig skila ég eða skipti vöru?
Hægt er að skila eða skipta vörum í Pétursbúð, Ránargötu 15. Ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins eða hefur einhverjar spurningar er alltaf velkomið að hafa samband við okkur.
Get ég komið og skilað vöru?
Já, getur skilað í Pétursbúð á Ránargötu 15, 101 Reykjavík
Vörurnar
Úr hverju eru plástrarnir gerðir og hvernig virka þeir?
Plástrarnir okkar eru gerðir úr 100% hágæða læknasílikoni og innihalda engin aukaefni, latex, paraben eða eiturefni. Þeir eru þróaðir með sömu aðferðum og læknasílikon sem notað er á ör og eru því vinsælir meðal húð- og lýtalækna. Plástrarnir virka með því að halda húðinni sléttri og koma í veg fyrir hrukkumyndun meðan þú sefur eða yfir daginn. Auk þess hjálpa þeir til við að viðhalda raka í húðinni sem stuðlar að unglegra útliti.
Hverjir geta notað vörurnar, þar á meðal á meðgöngu, með barn á brjósti eða með viðkvæma húð?
Vörurnar okkar henta flestum, þar á meðal barnshafandi konum, konum með barn á brjósti og þeim sem eru með viðkvæma húð. Sílikonplástrarnir eru gerðir úr 100% hágæða læknasílikoni sem er þekkt fyrir að vera óofnæmisvaldandi og allar aðrar vörur eru lausar við paraben, litar- og ilmefni. Þar sem húð getur verið sérstaklega viðkvæm á meðgöngu mælum við þó með að ráðfæra sig við lækni eða prófa vörurnar fyrst á litlu húðsvæði. Við mælum ekki með notkun ef þú ert með þekkt ofnæmi fyrir kísil eða öðrum innihaldsefnum vörunnar.
Hvenær sést árangur og hversu oft á að nota plástra og maska?
Flestir sjá árangur strax eftir fyrstu notkun þar sem húðin fær hvíld frá krumpum og hrukkum á meðan plástrarnir eru notaðir. Bestur árangur næst þó með reglulegri notkun yfir lengri tíma.
Plástrana má nota daglega og jafnvel yfir nótt. Því oftar sem þú notar þá, því betri árangur. Sumir nota þá fyrir sérstök tilefni en aðrir sem hluta af daglegri húðumhirðu.
Hversu lengi á að vera með plástrana og hvernig nota ég þá með minni venjulegu húðumhirðu?
Hversu lengi þú notar plástrana fer eftir húðgerð og þörfum, en því oftar og lengur sem þeir eru notaðir, því betri árangur fæst. Margir nota augnplástrana í um 20 mínútur fyrir farða og munnplásturinn í 1–2 klukkustundir yfir daginn eða yfir nótt. Plástrana skal alltaf nota á hreina og þurra húð, en þú þarft ekki að breyta húðumhirðurútínunni þinni. Haltu áfram með þína venjulegu rútínu og notaðu plástrana samhliða eða til skiptis við uppáhaldsvörurnar þínar.
Hversu margar notkanir fást úr plástrunum og hvernig þríf ég þá?
Hversu margar notkanir fást úr plástrunum fer eftir stærð pakkans og húðgerð, en litlu pakkningarnar endast yfirleitt í 5–8 notkunarskipti og þær stærri í allt að 15–20 skipti. Til að hámarka endinguna er mikilvægt að hreinsa plástrana rétt eftir notkun þar sem húðfita, húðvörur og dauðar húðfrumur geta haft áhrif á límið. Við mælum með að nota eingöngu Silicone Patch Cleanser sápuna okkar til að þrífa plástrana, þar sem hún hreinsar þá án þess að skemma límið. Aðrar hreinsivörur geta brotið niður límið og stytt endingartímann.
Af hverju geta plástrarnir ekki festst og hvað geri ég ef þeir eru of stórir?
Ef plástrarnir festast ekki skaltu fyrst ganga úr skugga um að plastfilman hafi verið fjarlægð og að húðin sé alveg hrein, þurr og laus við krem, serum eða olíur. Eftir nokkrar notkanir getur einnig hjálpað að hreinsa plástrana með Silicone Patch Cleanser sápunni til að endurheimta límið. Ef það dugar ekki gæti verið kominn tími á að endurnýja plástrana. Ef plástrarnir eru of stórir er auðvelt að klippa þá til áður en plastfilman er tekin af svo þeir passi betur að þínu andliti.
Hvernig nota ég sápuna til að þrífa plástrana?
1.Skolaðu plásturinn með volgu vatni og nuddaðu smá magni af sápunni varlega á límhliðina, síðan skolarðu hana af.
2.Leggðu plásturinn á spjaldið sem fylgdi með og leyfðu honum að þorna alveg.
3.Þegar plásturinn er orðinn þurr fær límið aftur fulla festu og þá er best að geyma hann á spjaldinu þar til næst.
Hvert er geymsluþol plástra, maska, sápu og serums? Og hvernig er best að geyma allt?
Plástrarnir og sápan hafa ekkert sérstakt geymsluþol þar sem plástrarnir eru gerðir úr 100% læknasílikoni án aukaefna. Serumið hefur hins vegar 12 mánaða geymsluþol eftir opnun. Best er að geyma vörurnar hreinar, þurrar og við stofuhita.
Eru vörurnar vegan, cruelty-free & niðurbrjótanlegar ?
Vörurnar okkar eru cruelty-free og flestar veganvænar. Einungis InfuseFAST™ andlitsmaskinn inniheldur sjávarkollagen. InfuseFAST™ maskarnir eru einnig 100% niðurbrjótanlegir og aðrar vörur eru að fullu endurvinnanlegar.
Hvernig virka vörurnar með fylliefnum?
Plástrarnir virka vel samhliða fylliefnum og hjálpa til við að meðhöndla fínar línur og hrukkur sem myndast vegna andlitshreyfinga og svefnstöðu. Þeir eru sérstaklega góð viðbót fyrir háls og bringu þar sem erfiðara getur verið að nota fylliefni. Plástrarnir eru einnig öruggur valkostur á meðgöngu eða fyrir konur með barn á brjósti þegar ekki er mælt með fylliefnum.
Wrinkles Schminkles vörurnar fást hjá:
Verslunum Hagkaupa – Smáralind, Skeifunni og Akureyri og inn á www.hagkaup.is
Motivo verslun – Miðbæ Selfoss
Pétursbúð - Ránargata 15 í miðbæ Reykjavík
Primos hár&dekur – Reykjanesbæ
Hafir þú áhuga á að gerast endursöluaðili getur þú sent okkur póst á wrinkles@wrinklesschminkles.is og við höfum samband